Hérna er litla afmælisbarnið okkar. Hann varð tveggja á laugardaginn var. Við héldum að sjálfsögðu upp á það, þó að veðurspáin væri slæm. Það var ágætlega mætt, en fólk dreif sig þó heim þegar rafmagnið fór af hjá okkur og skyggnið fór að versna. Það kom svokallað frostregn (freezing rain)með þeim afleiðingum að tré og trjágreinar brotnuðu undan þunga frostsins og strax á eftir byrjaði svo að snjóa. Ég tók nokkrar myndir, bæði af trjánum okkar sem brotnuðu og af trjám í götunni. Við vorum án rafmangs í 16 klukkutíma en sumir eru ennþá án rafmagns.
Það er reyndar von á öðrum svona stormi seinna í dag;) vona að rafmagnið haldist, því án þess verður ansi kalt í húsinu......
No comments:
Post a Comment