Monday, February 12, 2007

Þá er veturinn kominn fyrir alvöru. Fengum símhringingu kl 6 í morgun, enginn skóli hjá H og B vegna snjókomu. Okkur íslendingunum finnst þetta nú ekki mikið mál, enda dreif Hari sig í skólann. Spáin er víst áframhaldandi snjókoma og frost........
En hvað um það þá höldum við áfram hér að hafa það voðalega gott. Við Hari fórum á þorrablót hjá Hjalta og Kötu á laugardaginn, það var rosalega gaman, mikið sungið, drukknir íslenskir snafsar og borðaður þorramatur að sjálfsögðu.
Í janúar fengum við nefnilega heimsókn frá Kalla bróður og Þorgeiri. Þeir eru körfuboltabullur og ákváðu að hvíla sig aðeins milli leikja hjá okkur. Það var rosalega gaman að fá þá, við gátum aðeins sýnt þeim bæinn, verslað smá og fengið okkur gott að borða. Svo héldu þeir ferð sinni áfram að hvetja hetjur körfuboltaheimsins en þeir fóru á leiki í Chicago, Boston og New York.
Þeir feðgar tóku með sér smá súrmat og tilheyrandi í töskunni þannig að blótið yrði sem almennilegast hjá okkur og þökkum við þeim kærlega fyrir.
Setti inn nýjar myndir.

No comments: