jæja nú hef ég verið aðeins duglegri og náð að setja inn nokkrar myndir. Þetta eru myndir frá því við komum hingað fyrst, ekkert sérstakt tilefni endilega, bara svona um daginn og veginn. Svo eru líka myndir frá afmæli Hallgríms og þegar við fórum í eplaleiðangur.
Annars hafa allir það ósköp gott. H og B eru í skólanum og Hari líka, ég og litlu herrarnir erum bara að gera það sem okkur langar í það skiptið, ósköp notalegt, um leið og við sinnum skilduverkum húsmóðurinnar.
Hér er ansi kalt þessa dagana, -18 gráður á morgnana en hlýnar aðeins yfir daginn.
Segjum þetta gott í bili, vona að ykkur líki framlagið, þið sem nennið að skoða:)
No comments:
Post a Comment