Tuesday, December 05, 2006

Nýbúinn


jæja þá er best að reyna þetta. Það eru fjórir mánuðir síðan ég kom hingað með alla fjölskylduna og við höfum bara aðlagast ágætlega. Húsið er alveg frábært og staðsetningin líka. Tvípískt suburb... Íslendingarnir á staðnum hafa reynst okkur alveg einstaklega vel.

B og H eru svo duglegir í skólanum og á kafi í fótboltanum, tölvunni og sjónvarpinu að það þarf ekki að hafa áhyggjur af þeim. Þeir litlu eru ansi hamingjusamir þessa dagana þar sem amma er í heimsókn og þá þarf manni ekki að leiðast. Ömmur hafa nefnilega endalausa þolinmæði fyrir hinum ótrúlegustu leikjum:) Á meðan getur mamman leikið sér aðeins í tölvunni og prófað að blogga hmm eða allavega sett myndir á netið fyrir vini og fjölskyldur á Íslandinu góða.

No comments: